Veiddum þessa Vogmær í óslandinu.
Vogmær (Trachipterus arcticus) er ein
af níu tegundum fiska af vogmeyjarætt
(Trachipteridae) og sú eina af þessari ætt sem finnst við Ísland.
Vogmær er afar sérkennilegur fiskur í útliti.
Hún verður allt að 3 metrar að
lengd en er afar þunnvaxin.
Einn langur bakuggi gengur eftir endilöngu bakinu og
er hann rauður á litinn eins og hinir örsmáu eyruggar og kviðuggar.
Sporðurinn er líka rauður og vísar aðeins upp á við.
Sjálf er vogmeyjan silfurgrá á lit.
Augun eru stór og munnurinn
sérstakur þar sem hann lengist fram í trjónu þegar
hann er opnaður.